Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með Fiskistofu - eftirfylgni - stjórnsýsluúttekt i maí 2023

Skýrsla (2305245)
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Nefndarfundir

Dagsetning Fundur Bókun
24.01.2024 29. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með Fiskistofu - eftirfylgni - stjórnsýsluúttekt i maí 2023
Nefndin samþykkti að ljúka málinu með eftirfarandi bókun:
Niðurstaða eftirfylgniskýrslu er að matvælaráðuneyti og eftir atvikum Fiskistofa hafa ekki brugðist með viðunandi hætti við úrbótatillögum Ríkisendurskoðunar frá 2018.

Fyrir nefndinni kom fram að þrátt fyrir margvíslegar áskoranir hafi margt breyst til batnaðar í eftirliti Fiskistofu. Stofnunin hafi unnið að því að taka upp aðrar skilvirkar og hagkvæmar lausnir í eftirliti sem hafi reynst árangursríkt. Að mati nefndarinnar er hér um jákvæða þróun að ræða en ljóst er að enn er langt í land með mörg af þeim atriðum sem Ríkisendurskoðun benti á. Matvælaráðuneytið stefnir að því að ávarpa mörg af þeim í væntanlegum frumvörpum sem byggja á verkefninu „Auðlindin okkar“. Nefndin bendir á mikilvægi þess að tryggja fullnægjandi fjármagn.

Nefndin áréttar að sjávarútvegur sé einn veigamesti og arðbærasti atvinnuvegur landsins. Ríkir almannahagsmunir standa til þess að eftirlit með umgengni og nýtingu sjávarauðlindarinnar sé traust og tryggðar séu sjálfbærar og ábyrgar veiðar. Eftirlit Fiskistofu er þar mikilvægur liður. Hvetur nefndin ráðuneytið og Fiskistofu að nýta skýrsluna og niðurstöður Ríkisendurskoðunar til áframhaldandi umbóta.
11.10.2023 5. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með Fiskistofu - eftirfylgni - stjórnsýsluúttekt i maí 2023
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Áslaugu Eir Hólmgeirsdóttur skrifstofustjóra og Agnar Braga Bragason frá matvælaráðuneyti.
09.10.2023 4. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með Fiskistofu - eftirfylgni - stjórnsýsluúttekt i maí 2023
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ögmund Knútsson fiskistofustjóra, Elínu B. Ragnarsdóttur og Ernu Jónsdóttur frá Fiskistofu.
07.06.2023 69. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með Fiskistofu - eftirfylgni - stjórnsýsluúttekt i maí 2023
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Áslaugu Eir Hólmgeirsdóttur skrifstofustjóra, Sigríði Norðmann og Jón Þránd Stefánsson frá matvælaráðuneyti.
05.06.2023 68. fundur stjórn­skip­unar- og eftirlitsnefndar Skýrsla Ríkisendurskoðunar um eftirlit með fiskistofu - eftirfylgni - stjórnsýsluúttekt i maí 2023
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn Guðmund Björgvin Helgason ríkisendurskoðanda, Jarþrúði Hönnu Jóhannsdóttur og Harald Guðmundsson frá Ríkisendurskoðun.